Weblog Commenting by HaloScan.com


Site Meter
Gunnhildur í Odense!
The WeatherPixie

juli 31, 2006
 
Austurríki og Ungverjaland

Við Baldur vorum að koma heim úr 8 daga ferð til Mið-Evrópu, nánar tiltekið til Ungverjalands og Austurríkis, og ætla ég því að reyna að koma með smá ferðasögu. Þetta var alveg ólýsanlega gaman og ferðin heppnaðist í alla staði alveg frábærlega. Það er ekki hægt að lýsa því hvað við skemmtum okkur vel þannig að ég ætla að stikla á stóru og láta myndirnar tala sínu máli.

Budapest
Við hófum ferðina með því að fljúga til Budapest. Þegar við vorum lent á Ferihegy flugvelli var næsta verkefni að komast á hótelið, sem við vorum búin að bóka okkur á. Auðvelda leiðin hefði verið að taka leigubíl, en það var ekkert fútt í því svo við tókum frekar strætó að næstu metróstöð og tókum svo metróinn að Kálvin tér sem var sú stöð sem var næst hótelinu okkar. Eftir þetta ferðuðumst við allt með metró, enda auðvelt og fljótlegt og svo höfðum við voða gaman að rúllustigunum á metróstöðunum sem eru langir og fara á svo miklum hraða að venjulegir rúllustigar verða eins og barnaleiktæki í samanburði.
Daginn eftir vöknuðum við snemma og skelltum okkur í tveggja tíma "Sightseeing-bus" um Buda og Pest (borgarhlutar í Budapest). Fengum við góða yfirsýn yfir borgina og sáum allt það helsta. Eftir það fórum við yfir Dóná til Buda og gengum upp á kastalahæðina og skoðuðum okkur um þar i nokkra tíma, enda margt að sjá. Þess utan fórum við í neðanjarðargöng sem liggja inni í hæðinni og ná yfir 4000 m2. Göngin eru frá miðöldum en voru notuð í seinni heimsstyrjöldinni sem loftvarnarbyrgi.
Um kvöldið fórum við í siglingu á Dóná og næsta dag fórum við á markað og gengum aftur yfir Dóná til Buda, þar sem við skoðuðum okkur um áður en við tókum metróinn á brautarstöðina Keleti pu, þaðan sem við fórum með lest til Wien í Austurríki.

Wien
Næsti áfangi ferðarinnar var Wien og gistum við tvær nætur þar eins og í Budapest. Við komum til Wien Westbahnhof um kvöldmatarleytið með lestinni frá Budapest og fórum þá beint á hótelið okkar. Eftir að við vorum búin að koma okkur fyrir löbbuðum við í Prater, sem er frægur skemmtigarður í Wien, og þar fórum við í Das Riesenrad, sem er eitt af merkjum Vínarborgar.
Daginn eftir byrjuðum við á því að fara í "Sightseeing-bus" til að fá yfirsýn yfir það helsta og eftir það kíktum við svo betur á útvalda staði, s.s. Hofburg, Parlament og Karlskirche, en þar að auki tókum við metróinn til Schönbrunn (sjá mynd).
Um kvöldið leigðum við okkur hjólabát og sigldum á Alte Donau og enduðum svo kvöldið á Donau Insel, þar sem eru skemmtistaðir og barir og mikið af ungu fólki.
Næsta morgun fórum við á Westbahnhof og hoppuðum upp í lest til Braunau am Inn þar sem ég bjó fyrir 9-10 árum og á enn yndislega fjölskyldu.

Braunau am Inn
Næstu þrjá dagana vorum við hjá fjölskyldunni minni í Braunau í góðu yfirlæti. Þarna var ég komin á heimaslóðir og hafði gaman af að sýna Baldri allt sem ég þekki og austurríska fjölskyldan mín vildi allt fyrir okkur gera. Fyrsta kvöldið fórum við í göngutúr um Braunau og borðuðum ís. Næsta dag fórum við að Wolfgangsee (sjá mynd), sem er með fallegri vötnum Austurríkis við rætur Alpafjallanna. Þar gátum við sólað okkur og baðað og svo spiluðum við blak, jafnvel þó að það væri farið að heyrast í þrumum og byrjað að rigna smávegis. Þegar þrumuveðrið skall á fórum við til St. Wolfgang og biðum af okkur mestu rigninguna, en fórum svo í skoðunarferð um þennan gamla stað. Daginn eftir fórum við til Salzburgar, sem mér finnst ein af fallegri borgum Austurríkis og þó víðar væri leitað. Þess utan fórum við í hjólatúr meðfram ánni Inn og svo höfðum við það huggulegt og borðuðum austurrískan mat og drukkum austurrískt hvítvín.

München-Odense
Í gær lögðum við svo af stað með næturlest frá München til Odense. Eftir að sætinu okkar var breytt í rúm í gærkvöldi sofnaði ég einhvers staðar í kringum Würzburg og vaknaði ekki fyrr en á landamærum Þýskalands og Danmerkur um sjöleytið í morgun og svo hoppuðum við úr í Odense um níuleytið.

Frábært ferðalag er nú á enda, en minningarnar lifa!


juli 22, 2006
 
Í stuttbuxum og ermalausum bol

Ég fylgdi múttunni minni til Kastrup í gærkvöldi og í leiðinni gerðum við okkur glaðan dag í København. Við skelltum okkur m.a. í "sightseeing bus" og rúntuðum um borgina í góða veðrinu og að sjálfsögðu fór hann með okkur út á Langelinie að skoða hafmeyjuna.
Það er gaman að segja frá því að þegar ég var að labba á Strikinu með mömmu í gær rakst ég á einu manneskjuna sem ég vissi fyrir víst að væri í Kaupmannahöfn núna. Já, þetta var hún Hrund, sem var með mér í MR og í körfunni í KR og er í Køben í sumar. Hún var næstum búin að labba rétt fram hjá mér (nánast straukst við mig) þegar ég fyrir tilviljun leit ég hana og hrópaði svo "Hrund" þegar ég fattaði hver þetta var. Alltaf gaman að rekast á fólk þegar maður býst alls ekki við því.

Já, þetta voru yndislegir 12 dagar sem við mæðgurnar áttum saman hér í Mörkinni og margt skemmtilegt sem við gátum brallað, og þau eru sko ófá hlátursköstin sem við höfum fengið saman. Við gerðum þó mest af því að slappa af, enda báðar þreyttar eftir amstur vetursins og jú svo fórum við auðvitað nokkrum sinnum í sundlaugina hér á kollegíinu, enda hitinn alveg að drepa okkur. Við mamma erum rosalega samrýmdar og góðar vinkonur og því finnst okkur erfitt að vera svona langt hvor frá annarri. En við bætum það upp með því að njóta þess tíma sem við hittumst, hér í Odense eða á Íslandi, alveg í botn. Núna er voða tómlegt hérna í litlu íbúðinni minni þar sem mamma er ekkert að vafstra í kringum mig (best að fara að tékka á því hvað Baldur er að gera!)

Það er ekki mikill tími til að sakna mömmu, þar sem við Baldur förum á morgun af stað til Búdapest, síðan áfram til Vínar og svo til Braunau og líklega kíkjum við til Salzburgar eða München áður en við komum heim 31. júlí. Ég er ekki alveg búin að fatta að við séum að fara, því það hefur verið svo margt annað að gera undanfarið (fyrst Sigga og svo mamma í heimsókn) en það hlýtur að koma þegar ég fer að pakka í bakpokann minn.

juli 18, 2006
 
Mæðgurnar

Við mæðgurnar höfum það aldeilis huggulegt hér í Odense. Við erum sko ekkert að stressa okkur og njótum þess bara að slappa af, sofa út og gera það sem okkur dettur í hug. Veðrið heldur enn áfram að leika við okkur og því er tilvalið að skella sér í sundlaugina öðru hvoru til að kæla sig af. Á myndinni hér til hliðar erum við kerlingarnar einmitt í sundlauginni í garðinum við kollegíið. Á morgun á að verða enn heitara og ætlum við því að skella okkur aftur í sundlaugina og jafnvel draga Baldur með okkur.

juli 13, 2006
 
Í sumarfríinu

Já, ég er hér enn þó að lítið hafi heyrst frá mér að undanförnu, en það hefur barasta verið alveg nóg að gera. Um síðustu helgi var Sigga systir hans Baldurs í heimsókn hjá okkur skötuhjúunum hér í Odense og var ýmislegt brallað þá. Af því að við vorum svo heppin að ég var með bílinn hans Ella bróður í láni gátum við farið að skoða Egeskov slot sem er um 30 km frá Odense á Suður-Fjóni (sjá myndir). Þess utan grilluðum við ásamt Heiðdísi og Magga, vinum okkar, og svo fórum við á ávaxta- og grænmetismarkaðinn og skruppum í miðbæinn hér í Odense. Nú, svo var líka tími til að slappa af og hygge (eins og Danirnir myndu orða það).


Núna er hún mamma mín svo í heimsókn hjá mér og það er sko ýmislegt sem við erum að bralla saman og alltaf nóg að gera hjá okkur. Á morgun ætlum við að breyta aðeins til og skreppa ásamt Baldri til Esbjerg að heimsækja Ellert bróðir.

Mamma verður hjá mér til 21. júlí og svo vorum við Baldur rétt í þessu að kaupa okkur flugferð til Búdapest þann 23. júlí. Við reiknum með að vera tvær nætur í Búdapest og svo tvær nætur í Vínarborg áður en við förum til Braunau að heimsækja fjölskylduna mína, sem ég var hjá þegar ég var skiptinemi í Austurríki 96-97. Við verðum í Braunau þrjár nætur og skreppum líklega til Salzburgar og eitthvað um nágrenni Brauanu og förum svo með næturlest frá München og komum heim til Odense þann 31. júlí. Ég hlakka mikið til ferðarinnar, enda hef ég aldrei komið til Búdapest og svo verður gaman að sýna Baldri Vín og Braunau og hitta austurrísku fjölskylduna mína sem ég hef ekki séð síðan i janúar árið 2004.


juli 03, 2006
 
Í sól og sumaryl

Það er yndislegt að vera í sumarfríi og ekki verra þegar veðrið er svona gott. Ég hef verið mikið á ferðinni síðustu dagana og skemmt mér rosalega vel. Á föstudagskvöldið skruppum við Baldur til Vejle og hittum þar kunningja mína frá Esbjerg, á laugardagskvöldið grillaði ég ásamt stelpunum sem ég er að læra með og í gær heimsótti ég svo vinkonu mína í sumarbústað á Langø. Þess á milli hef ég svo setið úti í garði og lesið jólabækurnar sem ég geymdi til sumarsins og verið í lauginni sem er hér í garðinum hjá okkur.

Ég nýt þess alveg í botn þessa dagana að hafa bíl, en brósi minn var svo vingjarnlegur að skilja bílinn sinn eftir hjá mér á meðan hann skrapp til Íslands. Ég notaði jú tækifærið og heimsótti vinkonu mína á Langø í gær (þar sem myndin hér að ofan var tekin). Það er gaman að komast aðeins út fyrir Odense og sjá hvað það fallegt hérna á Fyn.

Annars þá vorum við Baldur að fá tilboð um tveggja herbergja íbúð á Bikuben kollegíinu, sem er alveg nýtt og rosalega flott kollegí. En við tókum því ekki af því að þessi íbúð var á jarðhæð og við viljum helst ekki vera á jarðhæð, amk ekki þarna alveg inni í miðbæ. Nú, bíðum við svo bara eftir öðru tilboði!